Vörur

Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki í Umbria héraði, sem framleiðir hágæða ólívuolíur í takmörkuðu magni.

Ólívurnar þeirra eru ávallt pressaðar "beint af akrinum", einungis fáeinum stundum eftir að hafa verið tíndar, til að tryggja hina einstöku bragðeiginleika Brecce Rosse.  Þrjár mismunandi tegundir af ólívum eru notaðar til að ná fram hinum ótrúlegu bragðeiginleikum Brecee Rosse Extra Virgin Ólívuolíunnar.

Ólívutrén eru öll ræktuð í steinefnaríkum jarðvegi í hæðunum fyrir ofan bæinn Gubbio, og engin aukaefni eru notuð við ræktun ólívanna eða framleiðslu þessarar ljúffengu ólívuolíu.

Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni nota Brecce Rosse ólívuolíurnar.

Fara í niðurstöðulista